Af hverju ræktin?

Mér finnst svo algengt að fólk sé að tala um að koma sér af stað í ræktinni. Stundum hef ég spurt fólk: „ af hverju ætlaru að byrja í ræktinni?“ og oftast hefur fólk engin svör á reiðum höndum. Talar um að það þurfi að koma sér í form en hefur sig bara ekki af stað. En vitiði hvað? Ég hef fréttir að færa. Við þurfum ekki öll að fara í ræktina! Meikar það eitthvað sens að allir séu með sama áhugamálið? Það finnst mér a.m.k. ekki. Og mér finnst bara alls ekki meika sens að fólk sé að pína sig áfram að mæta á einhvern stað daglega til að stunda hreyfingu sem það hefur svo kannski ekkert gaman af. Nennir aldrei að mæta en pínir sig samt af stað. Hvers konar líf er það? Að mínu mati er þetta bara merki um að þú ert ekki að stunda réttu hreyfinguna fyrir þig. Þegar þú finnur réttu hreyfinguna þá LANGAR þig til að mæta, það er í alvörunni svo einfalt.

Fyrst og fremst finnst mér mikilvægt að við séum ekki að hugsa um hreyfingu til þess að refsa okkur fyrir óhollt mataræði eða af því að okkur finnst við feit og ætlum að hlaupa af okkur spikið. Hreyfingu ætti að nota sem tækifæri til að fá smá tíma útaf fyrir þig. Hlaða batteríin. Hlusta á tónlist. Hugsa. Hreyfing er í rauninni eitt það besta sem við getum gert fyrir okkur sjálf. Hvort sem við förum út að ganga, skokka, hjóla, förum í jóga, lyfta lóðum í ræktinni eða gerum æfingar á dýnu á stofugólfinu. Það er einnig hægt að skrá sig á allskonar námskeið eða í íþróttir, eins og til dæmis súlufitness, sund, dans, fótbolta, blak og margt fleira. Það er ekki til bara ein rétt leið. Hver og einn þarf að finna þá hreyfingu sem hann elskar og þá verður það engin kvöð að hreyfa sig. Ef þú hefur hingað til átt erfitt með að stunda hreyfingu því þér finnst óþægilegt að fara í ræktina, eða bara hreint út sagt leiðinlegt, þá vil ég benda á það enn of aftur að það ÞARF ekki að fara í ræktina. En alveg sama hvað þú gerir, ekki sleppa allri hreyfingu. Hreyfingarleysi er eitt það versta sem við getum gert okkur. Lýðheilsustofnun mælir með a.m.k. 30 mín hreyfingu á hverjum degi og er það gott viðmið.

Það ættu allir að geta fundið einhverja hreyfingu sem þeir hafa gaman af. Eftir að hafa stundað ræktina í mörg ár fékk ég einn daginn bara ógeð. Ef ég fór í ræktina þá lokaði ég mig aleina inní hóptímasal og gerði æfingar þar. Ég fékk bara algjört ógeð á „ræktar-tækjum“ og ég veit ekkert af hverju. Allt í einu bara hafði ég ekki áhuga á að mæta í ræktina. Þá ákvað ég að prófa Crossfit. Núna er komið ár síðan og ég hlakka alltaf til að mæta á hverja einustu æfingu. Leita aldrei af neinum afsökunum til að mæta ekki.

Ég hvet ykkur eindregið til að skoða hvað er í boði í kringum ykkur og prófa ykkur áfram. Setjum okkur sjálf í fyrsta sætið og förum bara í smá sjálfskoðun. Hreyfing og vellíðanin sem fylgir henni eykur sjálfstraust og andlega vellíðan svo mikið að það er algjörlega þess virði að eyða smá tíma í að finna hvað það er sem þér finnst gaman að gera!

Eigið góða helgi

Þér gæti einnig líkað við